Forsíða   |   Hótel   |   Aðstaða   |   Útivist   |   Hestar   |   Heklusetur   |   Lærdómssetur   |   Fjallaland   |    Sagan
   


Þú ert hér > Leirubakki > Fréttir

English  Deutsch

Af spjöldum sögunnar

Þjóðsögur af Leirubakkadraugnum

Álfaþúfa

Sögu- og menningarganga 2007

Sögu- og menningarganga 2006

Landréttir í Réttarnesi

Tenglar

7.7.2009 13:03:09
Útivistarfólk á Heklutindi

Hópur fólks úr ferðafélaginu Útivist, rösklega 20 manna hópur, gerði sér lítið fyrir og gekk á Heklutind um nýliðna helgi. Það tók hópinn 6 klst og 15 mínútur að ganga upp á toppinn og niður aftur, en gengið var frá bílastæðinu við Skjólkvíar.

Göngufólkið sagði að auðvelt hefði verið að ganga og þrátt fyrir að nokkur snjór  væri á leiðinni olli það ekki töfum eins og sést á tímalengdinni sem ferðalagið tók.

Þessi hópur vaskra Útivistarmanna lét því spár um yfirvofandi Heklugos ekki hræða sig frá göngu á fjallið fræga líkt og raunin var á um Ferðafélagsfólk um Jónsmessuna.

Útivistarfólkið kom að sjálfsögðu við í Heklusetrinu á Leirubakka bæði fyrir og eftir gönguna, skoðaði Heklusýninguna og fékk sér hressingu.

Myndin er tekin af hópnum fyrir utan Heklusetrið áður en lagt var í hann.

 



Prentvæn útgáfa

 Til baka

© Leirubakki | leirubakki@leirubakki.is | bookings@leirubakki.is
Sími/Tel. +354 487 8700 | GSM/Mobile: +354 893 5046| Fax: +354 487 6692